Kæri viðskiptavinur

Vegna vinnslu gagna biðjum við þig kæri viðskiptavinur að skrá kílómetrastöðu langtímaleigubifreiða í þinni umsjá inn eigi síðar en 18. janúar.  Ef skráning best ekki mun vera send áætluð kílómetrastaða ökutækisins sem getur valdið ákveðnum óþægindum í útgáfu reikninga, sem gott væri að forðast.

Um áramót tóku í gildi ný lög er varða innheimtu kílómetragjalda vegna rafmagnsbíla og tengiltvinnbíla. Frá og með næstu mánaðarmótum koma þessi gjöld til innheimtu á leigusamningi  sem eru 2 kr á km fyrir tengiltvinnbíla og 6 kr. fyrir rafmagnsbíla.  Samgöngustofa fer fram á samhliða þessu að núverandi kílómetrastaða allra ökutækja í þessum flokkum sé skráð í þeirra kerfi.  Þessu skal vera lokið fyrir 20. janúar næstkomandi. 

Hafa ber í huga að sú upphæð sem mun birtast reikningi næstu mánaðarmót mun byggjast á þeim kílómetrum sem innifaldir eru á leigusamningi. Sem dæmi: Ef um er að ræða tengiltvinnbíl með 1500km inniföldum á mánuði mun 3000 kr. gjald (2 kr. x 1500km = 3000 kr.) bætast við reikning.  Uppgjör vegna minni aksturs eða umframaksturs fer svo fram við lok leigutíma.

Allar upplýsingar vegna þessara laga má finna hér: www.vegirokkarallra.is

Með bestu kveðju
Starfsfólk Hertz Langtímaleigu