Samfélagsábyrgð

Í langri sögu fyrirtækisins hefur ávallt verið kappkostað að hafa áhrif til góðs í samfélaginu. Þess vegna tökum við samfélagslega ábyrgð okkar alvarlega og styðjum sérstök málefni með umhyggju, jávæðni og ábyrgð að leiðarljósi. Viljir þú sækja um samfélagsstyrk hjá Hertz vinsamlegast fylltu út formið hér að neðan. Samfélagsnefnd fyrirtækisins fjallar um innkomnar umsóknir og öllum umsóknum verður svarað.

Um­sókn­um þarf að fylgja:

  • Upplýsingar um nafn, heimilisfang, kennitölu, síma og netfang þess sem sækir um og tengilið verkefnis.
  • Greinargóð lýsing á verkefninu eða viðfangsefninu, markmiðum þess og kostnaði.
  • Upphæð sem sótt er um.

Öllum um­sókn­um verður svarað þegar tek­in hef­ur verið afstaða til þeirra.  

Sýna verður fram á til­urð verk­efn­is til að styrk­ur sé greidd­ur út og senda inn reikn­ing til Hertz þar sem kem­ur fram nafn, kennitala, banka- og reikn­ings­núm­er.

Sam­fé­lags­sjóður Hertz styrk­ir ekki:

  • Einstaklinga, nemendur, fyrirtæki, íþróttafélög og önnur félagasamtök til náms eða ferðalaga, hvort heldur sem er innanlands eða erlendis.
  • Íþróttafélög með beinum rekstrarstyrkjum. Styrkbeiðnir verða að snúa að forvarnaverkefnum.
  • Verkefni sem nú þegar hafa verið framkvæmd. 
  • Kosningaherferðir nemenda eða stjórnmálaflokka.
  • Verkefni á grundvelli persónulegra hagsmuna eða viðskiptatengsla.
  • Beiðnir um aug­lýs­ing­ar eða styrkt­ar­lín­ur í blöð og tíma­rit skulu að ber­ast á ads@hertz.is

Styrktarumsókn

Sam­fé­lags­sjóður Hertz er starf­rækt­ur með það að mark­miði að styðja við ýmis verk­efni sem tengj­ast lýðheilsu og for­vörn­um. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári.

Til að sækja um þarf að fylla út umsóknina hér fyrir neðan. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Fill out my online form.